Pétur Jónasson
Fylgja minningarsíðu
23. ágúst 1941 - 29. apríl 2022
Pétur Jónasson fæddist á Suðureyri í Súgandafirði 23. ágúst 1941. Hann andaðist 29. apríl 2022 á Krabbameinsdeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju 9. maí kl. 14. Pétur ólst upp á Suðureyri hjá foreldrum sínum, þeim Jónasi Sigurðssyni, f. 17.12. 1904, d. 28.11. 1967, og Sigríði Pétursdóttur, f. 21.10. 1910, d. 14.12. 2003. Alsystkini Péturs eru: Friðbert, f. 25.1. 1945, augnlæknir, búsettur í Kópavogi, Sigríður f. 10.6. 1947, verslunarkona, d. 7.7. 2013, Kristmundur, fæddur 13.6. 1951, matreiðslumeistari, búsettur í Reykjavík. Hálfsyskini Péturs eru Indiana Sigríður Jónasdóttir, f. 3.3. 1932, d. 27.3. 2016, Rannveig Hansína Jónasdóttir, f. 26.9. 1935, d. 13.2. 2020, Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri í Reykjavík, f. 2.6. 1933, búsettur í Reykjavík.
Útför
Útför fór fram 9. maí 2022
Þakkir
Sérstakar þakkir til heilbrigðisstarfsfólks sem annaðist hann, norðan heiða og sunnan.
Ertu með minningargrein?
Hér getur þú skrifað minningargrein eða sett inn minningargrein sem hefur nú þegar verið skrifuð.