Fylgja minningarsíðu
Margrét S. Guðmundsdóttir
Fylgja minningarsíðu
19. maí 1946 - 7. júlí 2022
Andlátstilkynning
Elskulega eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir okkar Margrét S. Guðmundsdóttir, Álfaskeiði 95, 220 Hafnarfirði. Kvaddi okkur þann 07. 07. 2022
Útför
19. júlí 2022 - kl. 13:00
Hún verður jarðsungin þriðjudaginn 19. júlí 2022 kl. 13 frá Hafnarfjarðarkirkju. Þorgeir, Ragnhildur og Helgi, Bára og Geir, Halla og Bárður, barna-, barnabarnabörn og systkini
Aðstandendur
Þorgeir Sæmundsson, Ragnhildur Anna Þorgeirsdóttir, Helgi Pálsson, Bára Kr. Þorgeirsdóttir, Geir Bjarnason, Halla Eyberg Þorgeirsdóttir, Bárður Smárason, barna- og barnabarnabörn
Minningarorð um tengdamóður okkar
Þú fórst óvænt frá okkur en skildir svo mikið eftir. Við komum seint inn í stórfjölskylduna og giftumst dætrum þínum. Við fundum það frá því við hittum þig fyrst hve mikið þú elskaðir dætur þínar og við fengum því ómælda ást og umhyggju frá þér. Þú vildir öllum svo vel í kringum þig og sýndir öllum ást og stuðning og bera dætur þínar þann arf áfram til barna sinna og barnabarna þinna.
Frá þinni vinkonu Helgu Jörunds
Elsku besta Magga mín. Hvað á ég nú að gera þegar þú ert farin í sumarlandið og með svona litlum fyrirvara? Við vorum vanar að hringja hvor í aðra á hverjum degi í yfir 50 ár og nú hringir engin. Við áttum margar skemmtilegar stundir saman. Í den þegar við vorum ungar og þú varst með gítarinn þá sungum við af hjartans lyst. Þegar kom pása fengum við okkur stundum smávindla og okkur fannst við vera óskaplega töff píur. Við fjögur, ég, Kiddi bróðir þinn, þú og Þorgeir, brölluðum ýmislegt saman en Þýskalandsferðin fræga stendur nú upp úr. Við hlógum einhver ósköp og skemmtum okkur vel. En engillinn minn, maður veit aldrei hvað langan tíma maður fær sem betur fer. Svo það á að njóta augnabliksins eins og hún mamma þín kenndi mér. Ég get ekki enn trúað því að þú sért farin, þú varst límið í fjölskyldunni en núna verða stelpurnar þínar að taka við.
Frá Blómbjörgu
Í dag verður blíða fallega yndislega föðursystir mín hún Magga jarðsungin.Mig langar að setja niður hérna nokkur fátækleg orð til að minnast hennar því hún var sannarlega einstök manneskja og ákaflega hjartahlý og brosmild, lítillát, hógvær og átti til ómælda ást fyrir alla sem urðu á hennar vegi. Hún var með allt á hreinu hvenær öll börn , barnabörn og barnabarnabörn allra sinna systkina og ættingja áttu afmæli. Ég fékk alltaf gjafir sendar frá henni á stórum dögum og nú síðast þegar ég útskrifaðist sem blómaskreytir, hún var ægilega ánægð með það og kallaði mig alltaf orðið Blómbjörgu sína og hrósaði mér í hástert. En hún var sjálf mikil garðyrkjukona og gaf mér ósjaldan sumarblóm á pallinn minn fyrir austan. Mér hlotnaðist sá heiður að sjá um útfararskreytingarnar fyrir fjölskylduna fyrir jarðaförina hennar en fann mér til mikillar skelfingar að veikindi voru að hellast yfir mig þegar líða tók á daginn í gær og éf er víst komin með Covid og get því ekki mætt í útförina í dag og það er þyngra en tárum taki <3
Minningarorð um elsku mömmu okkar
Elsku besta og fallegasta mamma í öllu heiminum.
Margrét Guðmundsdóttir
Elskuleg vinkona mín er látin hún kvaddi alltof fljótt við Margrét kynntumst sem nágrannar fyrir um 5o árum og höfum haldið Vinskap alla tíð við fórum í langar gönguferðir daglega fyrir 30 árum og vorum svo ánægðar með okkur svo Þegar rassarnir fóru að þyngjast þá var farið í smaralind Ikea og á kaffihús og að sjálfsögðu í heimsóknir til hvor annara Margrét hafði fallega rithönd og var vandvirk við allt sem hún tók sér fyrir hendur hún var ein af fáum perlum sem maður kynnist á lífsleiðinni Útför hennar var falleg og lögin hans Magga Eiríks og Villa Vill sungin ásamt öðrum fallegum lögum Ég vil þakka Margréti fyrir vinskapinn sem aldrei bar skugga á hvíldu í friði elsku Margrét kæri Þorgeir og fjölskyldan,Guð gefi ykkur styrk
Til elsku bestu ömmu Grétu...
Til elsku ömmu frá Jökli Eyberg
Elsku amma Gréta.
Elsku besta Magga mín hafðu þökk fyrir allt og allt.
Í dag kveðjum við elsku hjartans Möggu, það er með miklum trega sem ég kveð góða konu og það má með sanni segja að góð var hún. Eiginlega sú besta sem ég hef kynnst. Ég hef oft í seinni tíð hugsað um það hvernig hægt er að vera svona góð og hjartahrein eins og hún Magga því að það var hún svo sannarlega. Hún var yndisleg.
Elsku yndislega amma Gréta okkar❤️🌻
Amma, þú varst engri lík, með risastórt hjarta úr gulli og hugsaðir ávallt svo vel um allt og alla í kringum þig. Að eiga þig sem ömmu var eins og að vinna í lottó og gott betur en það. Þú varst góðmennskan uppmáluð og kenndir okkur svo margt sem við munum varðveita um alla tíð.
Elsku besta amma okkar❤️
Amma, þú varst engri lík, með risastórt hjarta úr gulli og hugsaðir ávallt svo vel um allt og alla í kringum þig. Að eiga þig sem ömmu var eins og að vinna í lottó og gott betur en það. Þú varst góðmennskan uppmáluð og kenndir okkur svo margt sem við munum varðveita um alla tíð.