Minning um ömmu Ingu frá Ingibjörgu Ólafsdóttur
Elsku hjartans amma mín og nafna. Nærvera þín var alltaf svo góð og alltaf notalegt að koma til þín og afa Villa. Ég er þakklát fyrir okkar samverustundir í bakstri, að syngja með þér og dansa, fá að gista í ömmuholu og heyra sögurnar þínar, fá að máta skartgripi þína og hælaskó og þegar þú settir á mig rauðan varalit svo við værum í stíl.